Í dag var athöfn í Ásgarði í Garðabæ ...íþróttahúsinu þ.e.a.s. :) Þar voru valdir íþróttakarl og íþróttakona ársins ásamt liði ársins. Allt úr knattspyrnunni, enda frábært ár hjá Garðabænum hvað það varðar. Við fimleikaforeldrarnir erum auðvitað mjög ánægð með okkar lið, unglingaliðið í hópfimleikum. Þær unnu öll mót sem þau tóku þátt í hér innanlands og urðu í fjórða sæti á Norðurlandamótinu, sem var reyndar líka haldið í Ásgarði í Garðabæ :) Steinunn okkar fékk viðurkenningar fyrir sína þátttöku með liði Stjörnunnar og einni fyrir þáttöku og góðan árangur með unglingalandsliðinu í hópfimleikum.
Annars er ég að skoða þá möguleika sem í boði eru á netinu fyrir að geyma myndir. Eigandi Sony vél á sá ég að þeir bjóða upp á e-ð sem heitir Play Memories. Virkar pínu flott þegar maður er búinn að skrá sig inn, en samt pínu glaðat :/ Þá fór ég að setja myndir inn á Flickr accountinn minn sem ég er búinn að eiga ónotaðann í langan tíma. En svo rakst ég á nýtt(fyrir mér allavegana) sem heitir This Life og er frá þeim sömu og eru með Shutterfly. ThisLife getur importað myndum frá facebook, flickr, picasa, google og Instagram, raðað eftir tímaröð, maður getur taggað, face reckognition og það er hægt að hafa joint account, t.d. með maka.
Núna eru þeir að gefa free account fyrir fyrstu 2500 myndirnar. Þannig að ég ákvað að prufa. Importaði frá öllum hinum þjónustunum mínum og endaði með rúmlega 4800 myndir! Sjiii... Gat reyndar fækkað þeim umtalsvert(meðan ég fylgdist með *HÓST*frekarömurlegum*HÓST* leik í enska boltanum :(
Allavegana, til að enda þetta á góðu nótunum þá lofar þetta ThisLife dæmi bara góðu við fyrstu sýn :)
sunnudagur, 11. janúar 2015
laugardagur, 10. janúar 2015
Kolaportið
Hvert fer maður ef þörf er á að kaupa flatkökur? Nú! Í Kolaportið :) Þangað héldum við, keyptum Selfoss flatkökur, skoðuðum gleraugu og keyptum. Ég tók að sjálfögðu nýja gæludýrið mittt með; Sony A6000 til að taka nokkrar myndir í portinu svona 'street photography' style. Nokkrar hér og fleiri á Flickr.
Efnisorð:
dagnýíafmæli,
kolaport,
steinunníafmæli
föstudagur, 9. janúar 2015
Góðan daginn!
Ansi lengi hefur þetta blogg legið í dvala ...eða síðan 8. ágúst 2009 þegar var popp og kósý. Og nú er 9. janúar 2015! Stelpurnar eru orðar aðeins stærri ...og gott ef ekki poppskálarnar líka :)
En ástæða þess að bloggið er að vakna til lífsins á ný er sú að ég fékk mér gasalega fína myndavél um daginn og ætla því að vera duglegur að henda hingað inn myndum. Helst einni á dag #svacamera! Byrjum á þessari sjálfsmynd.
Annars bar helst til tíðinda í dag að ég fór ásamt Ragga og Evu í vinnunni (og fleirum ekki-í-vinnunni) á 'Laugavegshlaupafund' í boði Ingvars Hjálmars., fyrrverandi Betwarian, þar sem settur var á laggirnar nokkur konar stuðningshópur nokkurra duglegra hlaupara sem stefna á Laugaveginn í sumar.
Ég hef reyndar verið mjög misduglegur við að hlaupa undanfarið þar sem hásin og hæll og allskyns væl hafa verið til trafala. En það er allt á batavegi. EHAGGI? :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
