laugardagur, 6. febrúar 2016

Þrepamót FSÍ

Í dag fórum við á Þrepamót FSÍ þar sem Kristín Jóhanna keppti í 5. þrepi.  Við mættum í Ármannshúsið of-mikið-klædd :) Kristín og vinkonur í Björk stóðu sig mjög vel.  Kristínu gekk aftur best í stökkinu.  Á gólfi er hún ekki alveg kominn með öll moment og faær því ekki aaalveg eins hátt þar.


Dags Mót Sæti Stökk Tvíslá Jafnvægisslá Gólfæfingar Samtals
6.2.2016 Þrepamót FSÍ 30 15.434 13.300 12.734 13.000 54.468
30.01.2016 Innanfélagsmót Björk 5 15,000 15,500 14,000 12,400 56,900

Hlín gefur Kristínu góðar ráðleggingar fyrir gólfæfingarnar.

miðvikudagur, 3. febrúar 2016

Augnlæknirinn

Dagný Lilja fór í dag í í árlega augnlæknisskoðun til Elínborgar.  Í ljós kom að sjónin hefur versnað aðeins og sjónskekkjan aukist.  Elínborg sagði þó að þetta væri nú alveg ,,eðlilegt í stöðunni".  Fengum resept og annan tíma að ári.  Fengum okkur svo Subway í tilefni dagsins :)




þriðjudagur, 2. febrúar 2016

Foreldraviðtöl ...tal

Frí í Víðó í dag vegna foreldravitala.  Vegna meiðsla sem kennari Dagnýjar varð fyrir þá verður hennar viðtal síðar.  Við Kristín hittum því hennar kennara.  Við erum nú svo heppnin að ávalt hafa stelpurnar okkar fengið afbragðs umsagnir frá kennurunum sínum og það breyttist lítið núna. Kristín stendur sig vel og yfir engu að kvarta :P

Að loknu viðtali fórum við, ásamt Dagnýju, beinustu leið á Skalla og fengum okkur ís, enda þriðjudagur og  2-fyrir-1 tilboð í gangi :)