Vaknað snemma og mætt á handboltamót klukkan 8 að Hlíðarenda. Dagný og FH stelpurnar spiluðu við Fylki, Víking, Hauka og Selfoss; töpuðu tveim með minnsta mun og unnu svo tvo :) Dagný skoraði mark og var svaka ánægð sem og við foreldrarnir :) Hittum Hildigunni og Pálma, en Eydís þeirra var líka að spila.
Fórum svo í göngutúr seinnipartinn, enduðum í kaffi hjá Írisi Björns. og Marín. Helgi og hinar stelpurnar voru á skíðum.
sunnudagur, 6. mars 2016
laugardagur, 5. mars 2016
Þrepamót FSÍ, Kristín að keppa
Það gekk mjög vel í dag hjá Kristínu. Liðakeppni í þrepum. Þær vinkonurnar í Björk enduðu í 5. sæti.
| Dags | Mót | Sæti | Stökk | Tvíslá | Jafnvægisslá | Gólfæfingar | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 5.3.2016 | Bikarmót FSÍ | 35 | 15.100 | 14.050 | 13.967 | 14.243 | 57.351 |
| 6.2.2016 | Þrepamót FSÍ |
30
|
15.434
|
13.300
|
12.734
|
13.000
|
54.468
|
| 30.01.2016 | Innanfélagsmót Björk |
5
|
15,000
|
15,500
|
14,000
|
12,400
|
56,900
|
föstudagur, 4. mars 2016
Dagur klippingar og út að borða með Sonic
Við Drífa fórum bæði í klippingu hjá Hulddísi í dag. Mikið klippt og mikið gaman :) Steinunn Anna kom úr 3ja daga skíðaferðalagi með FG frá Akureyri. Mikið brettað og örugglega mikið gaman þar líka.
Teymið mitt í vinnunni; Sonic, fór út að borða á Grillmarkðnum í kvöld. Svona í tilefni þess hvað við erum búin að vera rosalega dugleg og skemmtileg :) Við fengum okkur smakkseðilinn. Fullt fullt af hinum og þessum réttum. Smakk, smakk; lundi, hrefna, þorskur, rib eye, lamb meira naut og hrossalund og svo ís og súkkulaðiköku og fleira í eftirrétt. Bara annnnnnsi gott og mikið gaman.
Sem betur fer eru engar myndir til af viðburði þessum! He he he... sko allavegana engar birtingahæfar!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)