sunnudagur, 31. janúar 2016

Bekkjarafmæli Kristínar Jóhönnu og Hrannar

Kristín Jóhanna og Hrönn vinkona buðu í dag bekkjarsystkinum sínum  í skautaafmæli í Egilshöll.

Vinkonurnar Kristín Jóhanna og Hrönn.

Það var mikið skautað, pizzan kom frá Shake&Pizza, svo var skautað enn meira og svo afmæliskaka.  Hér eru nokkrar myndir frá gleðinni :)




laugardagur, 30. janúar 2016

Innanfélagsmót í Björk

Kristín keppti í dag á innanfélagsmóti í Björk í 5. þrepi.  Henni gekk vel og best í stökki :)

Dags. Mót Sæti Stökk Tvíslá Jafnvægisslá Gólfæfingar Samtals
30.01.2016 Innanfélagsmót Björk 5 15,000 15,500 14,000 12,400 56,900



Kristín að hefja gólfæfingar
Kristín og Jada


miðvikudagur, 27. janúar 2016

Afmæliskaffi Bjarna Dags

Fórum í kvöld út á Álftanesið, Steinunn skutlaði okkur ;) Kaffi í tilefni afmælis Bjarna Dags. Steinunn skutlaðist svo alla leiðina út í Ögurhvarf, næstum því bensínlaus, til að fara á dansæfingu. Skutlaðist svo til baka í kaffi og svo heim með okkur hin í farangrinum :) Til hamingju með daginn Bjarni :)

Hér er ein síðan 2013 af okkur systkinunum í Tungnaréttum.  Siffa tók myndina :)