Sýnir færslur með efnisorðinu hlaupaæfing. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu hlaupaæfing. Sýna allar færslur

fimmtudagur, 7. janúar 2016

Allt í kleinu

Yngri systurnar og Drífa voru heima í dag... ...ekki af sérlega góðu!  En höfðu það samt gott svona mest megnis við hárþvott og allskonar þvott.  Eftir kvöldmat skelltum við Dagný og Kristín í smá kleinusteik :)

Kleinurnar mínar! FYRIR...

...OG EFTIR :)

þriðjudagur, 5. janúar 2016

Byrjanir og enda ...nir

Skólinn byrjaði í dag. Kristín Jóhanna og Dagný Lilja kátar og hressar með að byrja aftur og hitta vinina eftir jólafrí.

Eftir vinnu fórum við svo með Steinunni á og hittum Niclaes þjálfara en Steinunn ætlar að taka sér smá frí frá fimleikum.  Í fyrsta sinn í þrettán ár!