þriðjudagur, 24. febrúar 2015

Konudagurinn

Síðasta helgi var pínulítið lituð af fimleikamótum!  Steinunn fór til Akureyrar með Stjörnunni að taka þátt í WOW fyrirtækjamótinu.  Við hin héldum til Keflavíkur á Möggumótið þar sem Kristín Jóhanna tók þátt.  Kristínu gekk vel og náði í fyrsta skipti að standa alla jafnvægissláaræfinguna sína.  Hún er farin að gera handahlaup á slánni :)

Stjarnan toppaði allt saman fyrir norðan og unnu allt sem í boði var.  Meistaraflokkurinn bar enda á 10 ára sigurgöngu Gerpluliðsins með sögulegum sigri.

Þorrablótið hjá Betware var haldið á föstudeginum og var bara ansi hreint gaman.  Ég var beðinn um að fara með Minni kvenna á þorrablótinu.  Eitthvað sem ég ætlaði reyndar að gera í fyrra, en varð frá að hverfa vegna fimleikamóts, auðvitað :)  Ræðuna má sjá hér fyrir neðan :p

Aftur að Stjörnustelpum, þær ætluðu að hafa náðugt laugardagskvöld á Akureyri og koma heim á sunnudegi.  Vegna brjálaðrar veðurspár var ákveðið að "bruna" heim strax á laugardagskvöldinu.  Þær komu heim kl: 3 um nóttina.

Sunnudagurinn, KONUDAGURINN, var svo heima fyrir í kósýheitum með konunum mínum :D





Hér eru svo það sem ég tók saman um Minni kvenna á Betware þorrablótinu.  Ég gerði reyndar smá drykkjuleik úr þessu í leiðinni.  Í ræðunni fékk ég lánaðar nokkrar línur úr íslenskum textum og bað fólk um að skála þegar það heyrði eina slíka :) Það tókst bara þokkalega :P

Kæru Betwerjar og Betwerjur...
SKÁL!
Svanur heiti ég, forritari i Sonic...

Ég var reyndar ráðinn/beðinn um að halda þessa ræðu í fyrra, en varð frá að hverfa.  Nú er komið nýtt ár með nýju blóti og ég því sjálfráðinn í þetta verkefni.  Eða það fannst Hrafni allavegana best.  

Ég hugsaði með mér, hvað get ég nú sagt, hvað get ég gert?  Reyni kannski að vera fyndinn?  Neee, litlar líkur á því!  Og svo hugsaði ég með hryllingi: En! Þarf ég ekki að flytja þetta á ensku? "A toast to Women", eða eitthvað svoleiðis.  Og reyna að vera fyndinn, á ensku!? Yeah, that's not gonna happen!

En, einhverra hluta vegna eru engar konur af erlendu bergi brotnar að vinna hjá Betware hér á Íslandi! Held ég allavegana!  Hver veit? Það er svo mikið af nýju fólki hjá okkur :) SKÁL fyrir nýja fólkinu :)
Anyways, þetta verður allt á pjúra íslensku.  Og ég held ég sleppi því bara að reyna að vera fyndinn, það gæti endað illa.  Í staðinn fæ ég að vitna hér og þar í viskubrunn íslenskra ljóðskálda og textahöfunda, stuðmanna og kvenna, um konur.
Eins og áður sagði, þá var ég sjálfvalinn, sjálfkvalinn, að flytja minni kvenna hér í kvöld, en ekki tala UM minni kvenna.  Ef sú væri raunin, þá væri þessi ræða miklu ...MIKLU lengri ...við strákarnir vitum allt um það...

En, eftir að hafa játað að flytja þessa ræðu fyrir ári síðan, varð ég að hætta við vegna þátttöku dóttur minnar á fimleikamóti!

Dóttir mín, sem er orðin kona!  Konan min, sem er kona! ...og hinar dætur mínar tvær, sem verða konur áður en maður veit af!  Og Kittý og Súsí, læðurnar tvær á heimilinu!  Þær verða þó aldrei konur!  Svo ég vitni í Þorstein Eggertsson “Ég er umvafinn kvenfólki, það get ég svarið".  

Ekki bara heima fyrir heldur líka í vinnunni, í ræktinni, umferðinni og hvar sem er.  Og þannig er það væntanlega eins og við viljum hafa það :)  Jafnvægi á hlutunum...

Tæplega helmingur landsmanna erum við karlmenn...

Ekki viljum við hafa þær of fáar ...og alls ekki of margar :)  One-to-one relationship, er það ekki fínt? Þeir sem eru yngri, eru kannski í one-to-many relationship.  En flestir karlarnir endum við í one-to-one ...og flestir með konu!

En, ekki nóg með að rúmlega helmingur landsmanna muni vera kvenfólk, þá eru konur líka bara eitthvað svo miklu meira;

Konur eru fallegar.  Íslenskar konur eru fallegar, Hófí, Linda P, Unnur B og þið konur, sem ég sé :)

Ég meina hafið þið prófað að google-a MISTER Universe, ...það er bara einhver bíómynd frá 1951!

Við, íslenskir karlmenn, erum þó alls engar gungur.  Við erum sterkir!  En ég held samt að konur séu sterkari, þær ala börn! Eigum við eitthvað að ræða það?

Amma á Kjóa átti t.d. 16 börn á 25 árum, munaði ekkert um það eitt árið að eiga tvö. Eitt í feb og annað í des! Skál fyrir ömmu á Kjóa, Skál fyrir ömmum og skál fyrir mömmum!

Konur hugga og konur hughreysta...

Konur eru hamingjusamar, glaðar, ástfangnar... og þær geta gert allt þetta og fleira í einu!  Annað en við karlarnir.  

Konur geta haft áhugamál OG sinnt vinnunni.  Ekki við karlpeningurinn, vinnan verður helst að vera okkar áhugamál!  

Konur geta alið upp börn, og verið í vinnni OG hlaupið maraþon.  Ég get t.d. bara hlaupið hálft maraþon!

Á síðasta ári fékk t.d. hin 17 ára Malala Yousafzay, friðarverlaun Nóbels. 17 ára.  Þegar ég var 17 var mitt helsta afrek það að hafa vera kosinn "karatemaður mánaðarins"!

Konur eru framtakssamar, rómantískar...
Brosmildar, blíðlindar, brjóstgóðar,
Konur ilma, eru kraftmiklar... heiðarlegar, mildar og góðar
Konur eru tryggar og umburðarlyndar,
Dökkhærðar, rauðhærðar, ljóshærðar, mjúkar og grófar
ærlegar, óttalausar, erfiðar ...sóðar?
Hávaxnar, léttlindar, lágvaxnar,
Konur eru heitar, rakar, lamandi og hlýar
fagrar, fyndnar, svalar, kaldar, gamlar og nýjar
Konur elda, eldast, og sumar yngjast
Konur eru djarfar, sælar og súrlindar,
duglegar, frábærar, ferlegar, ósyndar
Grátbólgnar, grimmlindar, vergjarnar,

Konur eru elskaðar, af körlum ...og konum

Konur geta líka verið í pilsi, kjól og buxum!  Við karlarnir getum eiginlega bara verið í buxum!

Svo eru konur líka menn, en menn ...eru ekki konur!

En þið losnið ekki við okkur ...því að það er ...eitthvað við ykkur!

Við skulum standa þétt saman, snúa bökum saman
því við erum öll úr saman efni, syngjum öll í sama kór:

1.
Fósturlandsins Freyja,
fagra Vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís!
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár:
þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár!
3.
Meyja! mannsins lotning,
milda, svása dís!
dagsins himnadrottning
dýrðleg með þér rís.
Lífsins ljúfu hörpu
ljær þú guðamál,
sigur sverði snörpu,
sœtleik banaskál!
2.
Móðir. — Hjartahreina,
himindjúpa ást,
lífsins elskan eina,
aldrei sem að brást!
árdags engilroði,
ungbarns sólarbrá,
sannleiks sigurboði,
signing Drottins há!
4.
Kona! mannsins króna,
kærleiks tign þín skín,
allir englar þjóna
undir merkjum þín;
þótt oss sólin þrjóti,
þróttur, fjör og ár:
grær á köldu grjóti,
góða dís! þitt tár.

Svo mæltist Matthíasi Jochumsyni í ljóðinu um Minni kvenna.

Að lokum:
Ykkur; mæðrum, konum og meyjum hefjum við karlar upp glösin og mælum: ykkar skál.

miðvikudagur, 18. febrúar 2015

Öskudagurinn á L5

Já, lítið verið 'bloggað' undanfarið!  En eftir óþarflega margar bollur og enga baunasúpu rann upp öskudagur.  Ákaflega mikið skítaveður-en-samt-fagur.

Stelpurnar voru búnar að ákveða búninga fyrir daginn.  Drífa og Steinunn máluðu þær svo og útkoman varð þessi:











föstudagur, 6. febrúar 2015

Portait of a pink hat

Dagný er búinn að ná veikindunum úr sér, svona að mestu leyti.  Mikið var hún glöð þegar hún mældist hitalaus og sá fram á að geta farið í skólann :)

Fór í foreldraviðtal með Kristínu Jóhönnu og hún er mikill fyrirmyndarnemandi og skemmtileg stelpa, sagði kennarinn :) Gaman að því...

Steinunn Anna og stelpurnar í Stjörnunni æfa af kappi fyrir keppnistímabilið sem hefst á Akureyri, föstudaginn 13. febrúar! DA DA DAMMMMM!!!  Þá á pabbi einmitt afmæli :)

Drífa fór svo með Dagnýju til augnlæknis og kom í ljós að hún er með sjónskekkju! :/  Duga því ekki lengur Kolaportsgleraugun!  Við fórum því til Sirrýar og Örvars í Plusminus optic og fengum ju.svakalega fín gleraugu á Dagnýju.

Framundan er svo sameiginlegt bekkjarafmæli þeirra Kristínar og Hrannar(bekkarystir) haldið í Litlu Björk.  Steinunn og Stjörnustelpur sýna Under Armour föt á Crossfitleikunum ...og örugglega sitthvað fleira :)

Myndirnar voru teknar í Plusminus optic á meðan við biðum eftir nýju gleraugunum. Ég tók myndina af Dagnýju en Dagný tók hinar myndirnar af okkur Drífu og Kristínu :)






Hér er svo Dagný með nýju gleraugun:



...og hér er rós ...sem ég fékk ...frá Drífu :) <3



sunnudagur, 1. febrúar 2015

Fleiri mót og veikindasnót

Já, miðjan okkar, hún Dagný er búin að vera veik síðustu daga, með 39° Missir af handboltamóti og samspili með skólahljómsveitinni :( Ekki gaman að vera veikur, en þessi flensa tekur víst 5 - 9 daga.  Ætti því að vera stutt í að hún jafni sig :)

Kristín er hress, aftur á móti, og fór ásamt Bjarkarvinkonum sínum í 5. þrepi á Þrepamót FSÍ sem haldið var í Gróttu.  Þær stóðu sig auðvitað vel :)

Ég stóð mig nokkuð vel líka þegar ég fór í 5k hlaup FH og Atlandsolíu, fyrsta keppnishlaup síðan síðasta vor einhverntíman.  Komst alveg fram og til baka :) Jeij... auðvitað nokkuð frá besta tíma, en endaði á 25:35.












mánudagur, 26. janúar 2015

Þorrablót og fimleikamót

Blót
Bóndadagurinn var á föstudaginn og eins og ávalt merkir hann upphaf Þorra með tilheyrandi Þorrablótum.  Í okkar vinahópi hefur verið haldið Þorrablót síðan ...síðan ...síðan ...ja, síðan það fyrsta var haldið ...eru liðin mörg ár! Ávalt mjög skemmtilegt og í ár var engin breyting :)  Iðulega er ákveðin þema, dæmi: 'konunglega þorrablótið' og 'pönk þorrablótið' en núna: 'persónulega þorrablótið' :)  Allir áttu t.d. að setja saman persónulegt ljóð og hér kemur mín útgáfa, Lítið um stuðla og höfuðstafi í þetta skipti, meira svona 'nútímabruðl' eitthvað :P
Ég, persónulega 
Ég vakna, kvalinn
Ég fer út, valinn
útvalinn
Ég er súr, ég er sætur
ég er súrsætur.
Ég er á, ég er Valur
ávalur
svalur
Ég er á, kannski lækur
sprækur
Ég fer heim,vanur
heimsvanur
Svanur
maður
sofnar
glaður
Mót
Alveg eldsnemma daginn eftir vöknuðum við svo ti lað fara á fimleikamót.  Má segja að 'umferð 2' sé að hefjast.  Kristín Jóhanna að fara á Innanfélagsmót í Björk í 5. þrepi.  Henni gekk alveg prýðilega vel og varð í 5. sæti :) Keppti í nýjum fimleikabol sem hún fékk í afmælisgjöf frá ömmu og afa á Krókahrauni.

Myndavélin var að sjálfsögðu tekin með á blótið og mótið. Allar teknar á 50mm prime f/1.8 Sony linsu.













fimmtudagur, 22. janúar 2015

Kristín Jóhanna afmælisstelpa: 9 ára :)

Hún Kristín Jóhanna okkar er 9 ára í dag.  Hún fékk auðvita 'óvæntan' sérpantaðan morgunmat í rúmið eins og lög gera ráð fyrir á Laufvanginum.  Hrærð egg, vöfflu með súkkulaði,  og súkkulaðiköku.  Það verður ekki af henni skafið; hún Kristín Jóhanna eeelskar súkkulaði.  Eða eins og hún segir sjálf:

"Ég elska bara súkkulaði!"









þriðjudagur, 20. janúar 2015

Helgin! Spilakvöld og Lína Langsokkur

Helgin að baki!  HM í handbolta byrjað ...og ekki það vel, gæti ég bætt við.  Sk*ttöpuðum fyrir Svíum í fyrsta leik en náðum okkur svo á strik gegn Alsír í næsta leik eftir að hafa lent 0 - 6 undir.  Næst á dagskránni: Frakkland ...oh my ...Oh mon dieu!

Kíktum smá í Kolaportið! Aftur! Dagný vildi endilega kíkja á gleraugu, og fann sér og fékk rauð :) Keyptum auðvitað Selfoss fladdara í leiðinni ...og kleinupoka! Já og súrmat!  Nú er þorrinn á næsta leiti með tilheyrandi súrindum

Á laugardagskvöldinu fór ég í ......á ... ...kallakvöld ....eða ...Flollafund :) Þ.e.a.s. við hittumst af og til Flollarnir. Í upphafi, þ.e. á haustmánuðum árið 2008, var það reyndar þrisvar í viku í CrossFit Sport þar sem við WODuðum grimmt undir styrkri stjórn Leifs Geirs.  Í seinni tíð hefur hittingurinn að mestu leiti einskorðast við sumarbústaði hér og þar á landinu og ...ja, það er eitthvað minna WOD-að en var þarna til að byrja með.  Hittingurinn á laugardaginn var reyndar alsaklaust spilakvöld þar sem tekið var í Bezzerwizzer og Robo Rally svo eitthvað sé nefnt.

Ég tók nokkrar portrait myndir í leiðinni,  á eftir að vinna myndirnar eitthvað og birti síðar.  Er bara að spekúlera í hvaða forrit maður eigi að nota í svona myndvinnslu! Photoshop? Lightroom? Eða eitthvað annað? Éveidiggi!

Á sunnudeginum fórum við svo á Línu Langsokk með ömmu Jóhönnu.  Við hittum Þrúði frænku og Emmu ömmubarn Friðjóns og Hrefnudóttur á sýningunni og allir skemmtu sér konunglega :)

Dagný Lilja

 Súrmatur, súrmatur...

 Robo Rally...

 Kristín, Dagný og Jóhanna amma

 Emma Friðjónsdóttir

Frænkurnar: Dagný, Kristín og Emma
....og Sigurlína Rúllugardína Nýlendína Krúsímunda Efraímsdóttir Langsokkur


Hurru, mánudagurinn maður! Ekki fór betur en svo að ég komst ekki á æfingu í hádeginu.  Ætlaði því að taka 'létta' æfingu með framhaldi um kvöldið! Nei nei, er ekki bara Fran, "vinkona" mín á dagskránni!  Og talandi um CrossFit árið 2008, þá tók maður sína fyrstu Fran, framkvæmdin sjálf tók náttúrulega heila elífð, nema hvað, þegar ég átti eina upphífur eftir þá fékk ég KRAMPA í hægri kálfann ...rétt náði að stíga á kassa og svo niður á gólf ...og þá fékk ég KRAMPAí vinstri kálfann!  Einhvernvegin náði ég að keyra heim og varsvo örugglega jafn lengi, eða lengur, að ganga frá bílnum og inn!  Sjón sem hún Drífa mín gleymir væntanlega aldrei! :) 

fimmtudagur, 15. janúar 2015

Meiri fimleikar ...en bara fundur í þetta skiptið

Fimleikafundur í Stjörnunni: komandi keppnistímabil hjá Steinunni og vinkonum í  hópfimleikunum ...verður keppnis :) Einnig er æfingaferð til Ítalíu.  Foreldrar mega koma með! Keppnis. ...heppnis?   En ætli við verðum ekki bara heima :P


Útsýnið út um fundargluggann.

miðvikudagur, 14. janúar 2015

Fimleikar! ...svona fullorðins

Jebb, ég fór í fimleikatíma í dag ...svona fullorðins fimleikatíma.  Það var opinn prufutími og mætingin var rosaleg ...hátt í 40 manns held ég.  Ég er sem sé rétt að ná mér núna(skrifað tveim dögum síðar) eftir alla kollhnísana kollhnísana kollhnísana kollhnísana kollhnísana og standa-á-höndum-og-kollhnís, standa-á-höndum-og-kollhnís, standa-á-höndum-og-kollhnís og handahlaup, handahlaup, handahlaup, handahlaup, handahlaup, handahlaup og flikk fram og aftur, flikk, flikk, flikk og hoppa hoppa hoppa hoppa hoppa hoppa hoppa á trampólini og ....ég fékk bara sjóriðu held ég ...kom örugglega grænn í framan heim!
Se vei mér þá ...


Þessi mynd tengist mínu hoppi ekki neitt.  Er af meistarahópi Stjörnunnar í hópfimleikum.
Myndin var tekin á ljósopi F5,6.  Hraðinn: 1/1250. ISO: 25600

þriðjudagur, 13. janúar 2015

Út að hlaupa

Fór út að hlaupa í hádeginu í dag með BwRunners. Það er hlaupahópurinn okkar í vinnunni.  Hópurinn fer iðulega 2. - 3. í viku út að hlaupa, Löng hlaup, stutt hlaup, spretti, tröppur og brekkur og fleira skemmtilegt.

Ég finn það eftir mitt meiðsla'frí' að ég á smá í land með að ná fyrra formi ...en það kemur :)

mánudagur, 12. janúar 2015

EMOM42! Hvað?

Jebb, maður er að reyna að koma sér í form eftir að hafa hlaupið pínu yfir sig síðasta sumar.  Fékk hásinabólgu og ekkert hlaupið í hálft ár!  En er búinn að fara núna sirka 3 - 4 skipti.  Hef líka farið í CrossFit Sport að lyfta og WOD-a.  NEMA HVAÐ, í hádeginu í dag var EMOM 42! Sjii, fyrir þá sem ekki vita þá eru gerðar æfingar á hverri mínútu á ákveðinn tíma, þ.e: Every Minute On The Minute í 42 mínútur. Vanalega eru EMOM kannski svona 8 eða 12 eða eitthvað ...en boj ó boj ...ekki 42 :) Komst þó lifandi frá þessu t.d. þrátt fyrir að "uppáhalds" æfingin *HÓST*wallball*HÓST* hafi verið á meðal æfinganna  ...he he!

Talandi um CrossFit, þá á eg alveg eftir að prófa að taka 'íþróttamyndir' á nýju vélina.  Hef verið að skoða ýmis YouTube myndbönd um vélina og hvernig er hægt að stilla hana fram og til baka.  Það er hægt að sérsníða hana á alla kanta.  Tek hana með á einhverja æfinguna og smelli af nokkrum myndum.  Svo er Kristín Jóhanna líka að taka þátt í fimleikamóti eftir hálfan mánuð og þar verður vélin brúkuð :)


Þessi mynd var tekin af stelpunum að skoða allar gömlu myndirnar á þessu bloggi, eins og t.d. þessa :)

Hey! Svo skráðum við hjónin okkur sem sjálfboðaliða á Smáþjóðaleikana sem haldnir verða hér á landi í sumar.  Drífa hefur t.d. unnið á NM, EM og HM og nú bætast kannski smáþjóðaleikar við!

sunnudagur, 11. janúar 2015

Við á viðurkenningarhátíð Garðabæjar

Í dag var athöfn í Ásgarði í Garðabæ ...íþróttahúsinu þ.e.a.s. :)  Þar voru valdir íþróttakarl og íþróttakona ársins ásamt liði ársins.  Allt úr knattspyrnunni, enda frábært ár hjá Garðabænum hvað það varðar.  Við fimleikaforeldrarnir erum auðvitað mjög ánægð með okkar lið, unglingaliðið í hópfimleikum.  Þær unnu öll mót sem þau tóku þátt í hér innanlands og urðu í fjórða sæti á Norðurlandamótinu, sem var reyndar líka haldið í Ásgarði í Garðabæ :)  Steinunn okkar fékk viðurkenningar fyrir sína þátttöku með liði Stjörnunnar og einni fyrir þáttöku og góðan árangur með unglingalandsliðinu í hópfimleikum.



Annars er ég að skoða þá möguleika sem í boði eru á netinu fyrir að geyma myndir.  Eigandi Sony vél á sá ég að þeir bjóða upp á e-ð sem heitir Play Memories. Virkar pínu flott þegar maður er búinn að skrá sig inn, en samt pínu glaðat :/   Þá fór ég að setja myndir inn á Flickr accountinn minn sem ég er búinn að eiga ónotaðann í langan tíma.  En svo rakst ég á nýtt(fyrir mér allavegana) sem heitir This Life og er frá þeim sömu og eru með Shutterfly.  ThisLife getur importað myndum frá facebook, flickr, picasa, google og Instagram, raðað eftir tímaröð, maður getur taggað, face reckognition og það er hægt að hafa joint account, t.d. með maka.

Núna eru þeir að gefa free account fyrir fyrstu 2500 myndirnar.  Þannig að ég ákvað að prufa.  Importaði frá öllum hinum þjónustunum mínum og endaði með rúmlega 4800 myndir! Sjiii...  Gat reyndar fækkað þeim umtalsvert(meðan ég fylgdist með *HÓST*frekarömurlegum*HÓST* leik í enska boltanum :(

Allavegana, til að enda þetta á góðu nótunum þá lofar þetta ThisLife dæmi bara góðu við fyrstu  sýn :)