föstudagur, 25. mars 2016

Rok, rólegheit og tívolí

Rok rok.  Stelpurnar, Drífa og Steinunn Anna, vöknuðu snemma til að fara með Önnu Vilborgu, Rúnari og Emelíu í búðarferð til Las Palmas.  Vel hálfnaðar fóru þær að spá í hvort búðir væru yfirleitt opnar, þar sem það væri nú föstudagurinn laaangi!  Jú, það kom á daginn, þeim var sagt að allar búðir væru lokaðar þennan dag!  Illt í efni.  Þær fóru því að skoða sig um, fóru í messu og svoleiðis.  En fyrir eitthvað kraftaverk fundu þær einhvern búðarklasa þar sem opnar voru verslanir
svo viti menn.  Allir gátu eitthvað keypt :)

Við hin, Dagný, Kristín og ég tókum deginum rólega.  Morgunmatur eins og venjulega, utan þess að við smygluðum út eins og tveim formkökusneiðum.  Röltum svo upp á hótel til Önnu og Flosa og gáfum þeim að smakka.  Líkaði þeim auðvitað vel.  Stelpurnar voru eitthvað svo þreyttar að
við vorum þar bara í mikilli leti.

Lilli og Beta komu einnig í heimsókn til þeirra sem og Kjartan og Kristín.  Nanna Dís kom svo til að leika við yngri systurnar. Ég fór með þeim niður að strönd og þær léku sér þar í sjónum.  Það var nú heldur hvasst.

Ég lagðist nú niður við nokkurs konar steingerðan varnargarð með reyfarann 'Run' eftir James Patterson.  Þegar svo ég sá einhvern íbúann trítla rétt hjá hausnum á mér ...og þá er ég að tala um einhverja rottuna!  Þá ákvað ég bara að tími væri kominn til að fara heim á hótel :) Stelpurnar voru alveg til í það og héldu áfram að leika í sundlaugargarðinum.

Um kvöldið fórum við svo aftur í Yumbo center þar sem við snæddum kvöldmat, ýmist pizzu eða nautalundir, sjálfur fékk ég mér risa T-Bone steik.  Að því loknu fórum við fjölskyldan í tívolí; Holiday World, og Nanna Dís kom með.  Það var farið í rúsíbana, parísarhjól, eitthvað annað 'hjól', sem Steinunn og Dagný fóru í allsvaaakalegt.  Einhverskonar rólubát, fallturn og að lokum hina bráðfyndnu El Toros naut :) Okkur fannst mjög fyndið að horfa á stelpurnar hristast á platnautum :D Síðan bara upp á hótel að pakka. Höldum heim á morgun.







Engin ummæli: