sunnudagur, 17. janúar 2016

Sumir tapa ...aðrir vinna!

Skokkaði langt og rólegt í dag ...á hlaupabroddunum.  Voru alveg rock solid í hálkunni og snjónum.  Alveg þolanlegt að skokka á smá malbiki líka.  Fann aðeins fyrir þeim undir táberginu, meira vinstra megin :/  Allavegana, eftir tæpa 7 kílómetra 'dó' síminn og þar með Strava mælingin.  Var með Garmin úrið, en það 'dó' eftir 17 kílómetra!! :/  ...ætli ég hafi ekki endað í tæpum 20k.

Liverpool - United tók við, tíðindalaus þangað til Rooooooney skoraði sigurmarkið.  Samhliða var leikur Íslands og Hvíta Rússlands.  Okkur tókst að glata 4 marka forskoti og tapa síðan leiknum með 1 marki: 39 - 38 :(

Kristín Jóhanna fór í þrefalt bekkjarafmæli hjá bekkjarfélögum!

Annars rólegt...

Afslappaðar...

Engin ummæli: